Endurnýtt húsgögn aðstoða fatlaða við að takast á við lífið
Góði hirðirinn, Nytjamarkaður SORPU og líknarfélaganna, styrkir CP félagið og Tourette samtökin um tæpa milljón króna.
Fimmtudaginn 28. nóvember afhentu Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri SORPU, og Sólrún Trausta Auðunsdóttir verslunarstjóri Góða hirðisins, CP félaginu á Íslandi og Tourette samtökunum á Íslandi, hvoru fyrir sig, 450.000 króna styrk frá Góða hirðinum, sem rekinn er af SORPU í samvinnu við líknarfélög. Þetta er fjórða árið sem árangur af samstarfinu skilar styrk til líknarstarfs.
CP félagið (celebral palsy) og Tourette samtökin eiga það sameiginlegt að vera stórlega vankynnt á Íslandi og njóta lítilla opinberra styrkja. Fyrir hönd CP félagsins veitti Ómar Örn Jónsson, formaður ásamt Degi Steini syni sínum, styrknum móttöku. Fyrir hönd Tourette samtakanna veitti Sigrún Gunnarsdóttir, formaður, styrknum móttöku ásamt 10 ára syni sínum, Lárusi Kristjáni Johnsen, sem er með Tourette. Bæði félögin munu nýta styrkinn til að efla þekkingu, umræðu og skilning á starfsemi sinni.
Með þeim á myndinni er Hjörtur Már Ingvarsson.
CP félagið (celebral palsy) er stuðningsfélag þeirra sem eiga við hreyfifötlun að stríða. Hugtakið CP er regnhlífarhugtak notað yfir hreyfihamlanir ýmis konar sem eiga rætur að rekja til heilaskemmda. CP er margskonar fötlun sem spannar allt frá vægri hömlun sem háir einstaklingi ekki í daglegu lífi, til alvarlegrar hreyfifötlunar sem einnig getur fylgt önnur skerðing s.s. þroskahömlun eða önnur fylgifötlun. Meðal meginmarkmiða CP félagsins er að stuðla að fræðslu um CP og skapa vettvang fyrir skoðanaskipti fatlaðra, aðstandenda og fagaðila.
Tourette samtökin eru landssamtök einstaklinga með Tourette heilkenni og fjölskyldna þeirra. Meginmarkmið samtakanna er að standa vörð um hagsmuni Tourette einstaklinga og stuðla að upplýsingamiðlun, þar sem aukinn almennur fróðleikur um Tourette og skilningur á sjúkdómnum er ákaflega mikilvægur fyrir fólk með þennan sjúkdóm.
Góði hirðirinn er rekinn af SORPU í samvinnu við líknarfélög. Endurvinnslustöðvar SORPU sjá um að safna húsbúnaði sem er seldur í gegnum Góða hirðinn, en ágóðinn af sölunni fer allur til líknarmála.
Með þessu fá munir sem hafa óskert notagildi, nýtt hlutverk. Jafnframt njóta líknarfélögin og skjólstæðingar þeirra góðs af ágóðanum og fá einnig sérafslátt í versluninni.












