02. desember 2002
Á endurvinnslustöðvum SORPU er þessa dagana verið að taka í notkun nýjar merkingar á gámum og tunnum fyrir úrgang. Um er að ræða merkingar sem FENÚR (Fagráð um endurnýtingu og úrgang) hefur séð um að hanna og gefa út og eru ætlaðar til notkunar á landsvísu. Merkjunum er ætlað að bæta alla aðkomu almennings að sorphirðu og flokkun efna til endurvinnslu. Forsenda endurvinnslu er góð flokkun og mikilvægt er að tryggja hreinleika þess efnis sem á að endurvinna. Það er von okkar að myndmál samræmdu flokkunarmerkinganna auðveldi þeim sem nýta sér þjónustu endurvinnslustöðvanna flokkun og skili betra hráefni til endurvinnslu.
Samræmdar flokkunarmerkingar

Um flokkunarmerki FENÚR
Ísland er fyrsta landið sem tekur upp samræmdar merkingar af þessu tagi. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að ráðast í gerð merkjanna er margþætt. Flokkun ýmissa úrgangstegunda hefur aukist á undanförnum árum og til þess að halda þeirri þróun við og til þess að auðvelda rétta aðgreiningu úrgangs þurfa upplýsingar um einstaka flokka að vera skýrar og aðgengilegar. Merkingar á flokkunarmöguleikum, hvort heldur á heimilum, í fyrirtækjum eða á gámasvæðum, þurfa að vera auðskiljanlegar, lýsandi fyrir hvern flokk og samræmdar fyrir landið. Með þessum merkingum ætti flokkun að vera auðveldari og úrgangur að skila sér í réttan flokk. Við gerð merkjanna var miðað að því að þau væru einföld og skýr og voru umferðar- og ferðaþjónustumerki höfð sem fyrirmynd. Stefnt var að því að fólk gerði sér grein fyrir því í hvaða flokk úrgangsefni eigi að fara án þess að þurfa að lesa sér til um það heldur ráða það af myndum á merkjunum.