Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:10 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,5 m/s
Hitastig: 3,00 °C

13. desember 2002

SORPA styrkir ferðafélagið Víðsýn!


Í stað útsendinga jólakorta í ár til samstarfsaðila og starfsmanna var tekin sú ákvörðun að styrkja gott málefni og varð ferðafélagið Víðsýn fyrir valinu. Ferðafélagið Víðsýn hefur það markmið að gefa félagsmönnum kost á að fara í skipulagðar ferðir innanlands sem utan. Í félaginu eru rúmlega 40 einstaklingar, gestir Vinjar, athvarfs fyrir geðfatlaða sem Rauði kross Íslands rekur að Hverfisgötu 47, Reykjavík. Garðar Sölvi Helgason, gjaldkeri félagsins (til vinstri) tók á móti styrknum fyrir hönd Ferðafélagsins Víðsýnar þann 13. desember og má sjá hann ásamt Ögmundi Einarssyni, framkvæmdarstjóra SORPU (til hægri) á myndinni.


Víðsýn er oft eini vettvangur gesta Vinjar til að ferðast. Margir eru mjög félagslega einangraðir og fjárráð takmörkuð, oft ekki nema lágmarksbætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Þegar búið er að greiða fæði og húsnæði er lítið eftir í kostnaðarliði eins og ferðalög. Á næsta ári er fyrirhuguð ein fjögurra nátta innanlandsferð auk tveggja dagsferða. Styrkur SORPU mun gera Ferðafélaginu Víðsýn kleift að greiða niður kostnað til félagsmanna og gefa þeim kost á kynnast landinu af eigin raun

Til baka