Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:10 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,5 m/s
Hitastig: 3,00 °C

21. desember 2007

Ljósið fær jólakortastyrk SORPU í ár

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU, afhendir Ernu Magnúsdóttur, forsvarsmanni Ljóssins, styrkinn.

Undanfarin ár hefur SORPA lagt góðum málum lið í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort. Að þessu sinni eru það samtökin Ljósið, samtök fyrir aðstandendur krabbameinssjúkra, sem hljóta jólakortastyrk SORPU að upphæð 200.000 krónur.


Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæði á erfiðum tímum með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkum sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Krabbameinsgreindir og aðstandendur þeirra hafa aðgang að endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðinni. Áhersla er lögð á að skapa hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem mannlegar áherslur eru í fyrirrúmi og fólki finnst það velkomið. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ljóssins, www.ljosid.org  

Upplýsingar fengnar af heimasíðu Ljóssins.

Til baka