Vistvernd í verki
Vistvernd í verki er íslenskt heiti á alþjóðlegu verkefni sem kallast Global Action Plan (GAP). Það komst fyrst á fót í Bandaríkjunum árið 1989 og er nú í boði í 17 löndum. Þetta er verkefni sem styður og eflir þá sem vilja taka upp umhverfisvænni lifnaðarhætti, með því að bjóða þeim að taka þátt í svokölluðum visthópi.
SORPA er stuðningsaðili að verkefninu og var einnig ráðgefandi aðili við gerð handbókarinnar Skref fyrir skref sem visthópar styðjast við í sinni vinnu.
Visthópur
Visthópurinn hittist á 7-8 fundum og fer sameiginlega í gegnum handbók, þar sem teknir eru fyrir 5 efnisflokkar, þ.e. sorp, orka, samgöngur, innkaup og vatn. Á fyrsta fund mætir leiðbeinandi, sem fylgir hópnum í gegnum verkefnið. Þátttakendur skipta með sér fundarstjórn fyrir hvern efnisflokk, en eru í símasambandi við leiðbeinandann milli funda. Á hverjum fundi ræða þátttakendur um ýmsar aðgerðir til umhverfisvænni lífsstíls og taka ákvörðun um það sem þeir vilja sjálfir prófa í eigin heimilishaldi. Gerðar eru mælingar bæði fyrir og eftir sem sýna ótvírætt þann árangur sem næst. Sem dæmi um árangur, þá hafa þátttakendur í visthópum í Svíþjóð að jafnaði sýnt eftirfarandi árangur: Sorp minnkaði um 42%, vatnsnotkun um 20%, orka um 9% og eldsneytisnotkun einkabílsins minnkaði um 19%. Fyrstu mælingatölur á Íslandi benda til þess að búast megi við verulegum árangri hér á landi.
Þátttaka í visthópi tekur um 9 vikur. Þar við bætist, að hóparnir ljúka verkefninu gjarnan með einskonar uppskeruhátíð. Þetta er einstaklega skemmtileg og áhrifarík leið til að taka upp umhverfisvænni lifnaðarhætti með stuðningi og í góðum félagsskap.
Þess má geta að starfsmenn SORPU hafa myndað einn visthóp en hann lauk verkefninu í lok apríl 2003.
Kynningarfundir
Reynslan sýnir að þegar fólk segir frá þátttöku sinni í visthópnum, vekur það oft áhuga annarra, t.d. vinnufélaga, nágranna og vina. Einmitt þannig verða síðan til fleiri visthópar, því hver hópur lýkur verkefninu með því að halda kynningarfund, ásamt leiðbeinandanum.
Fyrirkomulag
Landvernd vistar GAP verkefnið á Íslandi og hefur því yfirumsjón með því á landsvísu. Fyrirkomulagið er þannig að Landvernd gerir samninga við sveitarfélög og fyrirtæki eða félagasamtök, sem síðan bjóða sínum íbúum, starfsmönnum eða aðildarfélögum þátttöku í visthópum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar á skristofu Landverndar í síma 552 5242. Einnig er vísað á heimasíðu Landverndar: www.landvernd.is.












