Fræðsla

SORPA býður uppá margskonar fræðslu og upplýsingaþjónustu svo sem vettvangsferðir grunnskólanema sem að eru gríðarlega vinsælar, heimsóknir leikskólabarna, fræðsla fyrir nemendur vinnuskólanna á eigandasvæði SORPU, almannatengsl og fjölbreytt náms- og fræðsluefni.
Fræðsla gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að umhverfismálum. SORPA leggur sitt af mörkum með því að bjóða upp á fræðslu þar sem fjallað er um umhverfissjónarmið við úrgangsmeðhöndlun. Markmiðið er, að þeir sem fræðsluna hljóta, fái tilfinningu fyrir því hvernig þeir geti orðið ábyrgir og vistvænir neytendur. Í fræðslunni er skoðað hvernig hægt er að lágmarka úrgang sem verður til hjá hverjum og einum og hvernig má nýta það hráefni sem felst í úrgangi með því að flokka og skila til endurnýtingar. Á hverju ári koma um 2500 einstaklingar á öllum aldri í slíka fræðslu og er stærsti hópurinn nemendur grunnskóla.