Upplýsingastefna
Markmið SORPU bs er að nýta upplýsingatæknina sem verkfæri í starfi fyrirtækisins og er upplýsingastefna SORPU hluti af almennri stefnu fyrirtækisins og í samræmi við aðra stefnumótun.
Megin markmið upplýsingastefnu SORPU bs er:
- Að almenningur og fjölmiðlar hafi greiðan aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um fyrirtækið, þjónustu og starfsemi SORPU.
- Að traust ríki í samskiptum almennings, fyrirtækja og SORPU.
- Að miðla fróðleik og stuðla að gerð fræðsluefnis um málaflokka SORPU.
- Að starfsmenn hafi greiðan aðgang að upplýsingum innan SORPU.
- Að ábyrgð og verkaskipting í upplýsingamálum sé starfsmönnum ljós og framkvæmd markviss og fagleg.
Ábyrgð
- Framkvæmdastjóri ber höfuðábyrgð á upplýsingastefnu SORPU.
- Deildastjórar bera ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra á framkvæmd stefnunnar í viðkomandi deild.
- Starfsmenn undir stjórn Markaðs- og fræðslustjóra sjá um daglega framkvæmd upplýsingastefnunnar. Markaðs- og fræðslustjóri sér um samræmingu í upplýsinga- og útgáfumálum.
- Að veita upplýsingar er hluti af daglegu starfi þar sem hver starfsmaður gegnir hlutverki í að veita sem gleggstar upplýsingar um þjónustu og hlutverk SORPU.
Aðgengi að upplýsingum
Ytra upplýsingaflæði.
Markaðs- og fræðsludeild sér um að halda utan um ytri upplýsingagjöf. SORPA notast við ólíkar leiðir við að koma upplýsingum á framfæri til markhópa ef breytingar verða á þjónustu fyrirtækisins s.s. auglýsingar, fréttatilkynningar, heimasíðuna, merkingar á gáma og góðar merkingar á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins. Aðferð við upplýsingagjöf fer eftir atvikum hverju sinni.
Markmið SORPU er að hafa frumkvæði að upplýsingamiðlun við almenning og fjölmiðla um ákvarðanir, fyrirætlanir og ávinning sem hafa áhrif á samfélagið.
Innra upplýsingaflæði.
Innra upplýsingamiðlun er í höndum markaðs- og fræðsludeildar. Markmið með innra upplýsingaflæði er að gera starfsmenn sem best upplýsta um helstu verkefni sem liggja fyrir hjá SORPU. Mikilvægt er að halda samskiptaleiðum opnum sem gera starfsmönnum kleift að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri. Starfsmenn hafa ávallt greiðan aðgang að næsta yfirmanni eða markaðs- fræðsludeild til að koma upplýsingum á framfæri eins hafa þeir aðgang að ábendingakerfi á vef fyrirtækisins. Einnig er markmiðið að upplýsa starfsmenn um réttindi sín og skyldur og SORPA leggur ríka áherslu á vellíðan á vinnustað.
Helstu miðlar sem SORPA styðst við eru; fréttablöð starfsmanna sem send eru heim til allra starfsmanna, starfsmannfundir, starfsmannavefur á heimasíðu SORPU, fræðslufundir og námskeið sem SORPA heldur reglulega fyrir starfsfólk sitt, tölvupóstur, upplýsingatöflur og maður á mann.
Upplýsingagjöf við sérstakar aðstæður
Markmið fyrirtækisins er að bregðist skjótt og örugglega við sérstökum aðstæðum og veita almenningi og fjölmiðlum nauðsynlegar upplýsingar. Eins að bregðast við röngum eða villandi upplýsingum í fjölmiðlum um fyrirtækið og starfsemi þess. Annars er hvert tilfelli metið hverju sinni.
Siðferði
SORPA er áreiðanlegt fyrirtæki sem veitir góða þjónustu á hagkvæman hátt. Starfsmenn fyrirtækisins hafa góðar siðferðisreglur í heiðri í upplýsingamálum og við gerum það sem að við segjumst gera.
Merkingar
Starfsemi og upplýsingar frá SORPU skal ávallt auðkenna með merki hennar.












