Umhverfisstefna

SORPA vinnur í sátt við umhverfið og með sjónarmið umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi.

Því leggur SORPA áherslu á:

  • Að tryggja stöðugar úrbætur í umhverfisstjórnun og mengunarvörnum.
  • Að setja sér mælanlega markmið í umhverfismálum.
  • Að velja við innkaup á vöru og þjónustu umhverfisvæna, umhverfismerkta og/eða endurunnar vörur þar sem því verður við komið. Í útboðum og/eða verðkönnunum skal upplýst fyrirfram um kostnaðavægi þessara þátta.
  • Að leitast við að nota innlenda og endurnýjanlega orkugjafa, bæði á eigin tæki og tæki þjónustuaðila.
  • Að lágmarka notkun spilliefna og hámarka endurvinnslu og endurnotkun innan fyrirtækisins.
  • Að lágmarka hráefnanotkun og úrgangsmyndun innan fyrirtækisins.
  • Að hafa fyrirhyggju og frumkvæði að leiðarljósi við að upplýsa almenning, fyrirtæki og stofnanir um endurvinnslu og endurnýtingu.
  • Að hafa yfir að búa vel þjálfuðu starfsfólki og stjórnendum á sviði umhverfismála til að auka árangur og öryggi í allri vinnu að umhverfismálum.