Starfsmannastefna
SORPA vill skapa jákvætt starfsumhverfi, þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki og virðing fyrir hverjum einstaklingi er í fyrirrúmi.
Áherslur SORPU eru:
- Að hafa ávallt á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem veita góða þjónustu og bregðast við síbreytilegum þörfum.
- Að valdi, ábyrgð og ákvörðunarrétti skal dreift þannig að sjálfstæði og frumkvæði starfsmanna fái að njóta sín.
- Að stjórnendur skuli tileinka sér fagmannlega stjórnunarhætti og bera ábyrgð á störfum starfsmanna sinna, sýna þeim traust og veita þeim stuðning í starfi.
- Að starfsmenn skuli sýna kurteisi og virðingu í öllum samskiptum við samstarfsmenn jafnt sem viðskiptavini.
- Að einelti er fordæmt og ekki liðið á vinnustað.
- Að starfsmenn SORPU eigi möguleika á þróun í starfi og að möguleiki sé á að skapa starfsmönnum samfelldan starfsferil innan fyrirtækisins.
- Að nýir starfsmenn skuli fá leiðsögn og kynningu á fyrirtækinu og reynt sé að tryggja starfsmönnum símenntun eftir því sem tök eru á.
- Að gagnkvæmur sveigjanleiki sé í starfi og að jafnvægi ríki á milli vinnu starfsmanna og einkalífs þeirra.
- Að bjóða til árlegrar heilsufarsskoðunar og styrkja starfsmenn til heilsuræktar ásamt því að banna reykingar á starfsstöðvum.












