Öryggisstefna

SORPA vinnur sífellt að því að auka öryggi starfsmanna og viðskiptavina til að tryggja góða umgengni og öguð vinnubrögð svo að fyrirbyggja megi óhöpp og slys á starfsstöðvum SORPU.

Því leggur SORPA áherslu á:

  • Að allir starfsmenn þekki og vinni eftir þeim öryggisreglum sem  kynntar eru í öryggishandbók viðkomandi deilda.
  • Að kynna starfsmönnum vel viðbragðs- og rýmingaráætlanir.
  • Að merkja og girða af hættusvæði á starfstöðvum SORPU.
  • Að hafa reglulegt eftirlit með vinnusvæðum, ástandi vinnuvéla,  öryggisbúnaði og hlífðarfatnaði.
  • Að meta ávallt öryggisþætti upp á nýtt þegar breytingar eiga sér  stað í starfseminni og að láta úrbætur í öryggismálum almennt hafa  forgang.
  • Að setja sér mælanlega markmið í öryggismálum.
  • Að tryggja virka þátttöku og stuðning stjórnenda og starfsmanna  við öryggismál innan fyrirtækisins.