Gæðastefna

SORPA er traust og leiðandi fyrirtæki á sviði úrgangsstjórnunar, sem veitir góða þjónustu og býður vandaða vöru í sátt við umhverfið.

Áherslur SORPU eru:

  • Að vera í fararbroddi á Íslandi í meðhöndlun úrgangs og skuldbinda sig til að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið.
  • Að vera leiðandi í öflun og miðlun þekkingar, nýsköpun og innleiðingu bestu aðferða.
  • Að efla jákvæða ímynd fyrirtækisins með arðbærum rekstri, markvissri þjónustu, frumkvæði, trausti og trúverðugleika.
  • Að gera fyrirtækið öruggan og áhugaverðan vinnustað með þjálfað og lipurt starfsfólk.
  • Að tryggja góð samskipti starfsmanna, eigenda, samstarfsaðila og viðskiptavina.
  • Að uppfylla kröfur stjórnvalda og fylgja vottuðu gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 og vinna að stöðugum umbótum á því.