Hreinsistöð Metan hf. í Álfsnesi

Metan

Í ágúst árið 1999 var Metan hf. stofnað.
Tilgangur félagsins er dreifing og sala á metangasi, framleiðsla orku úr metangasi, þróun á umhverfisvænum orkugjöfum og önnur skyld starfsemi.
Stofnendur félagsins eru SORPA og Aflvaki.

Heimili félagsins er að Gufunesi, 112 Reykjavík en það deilir skrifstofu með SORPU.
Framkvæmdastjóri er Björn H. Halldórsson

Slóð heimasíðu Metans hf. er www.metan.is