Stjórn
Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi og skal hann vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Sömu skilyrði gilda um varamenn sem hver sveitarstjórn tilnefnir. Kjörtímabil stjórnar er til tveggja ára frá upphafi kjörtímabils sveitarstjórna. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal formennska skiptast á milli aðildarfélaganna. Stjórnarmenn fara með hlutfallslegt atkvæðavægi í samræmi við íbúafjölda þess sveitarfélags sem þeir eru fulltrúar fyrir. Atkvæðavægi endurskoðast í byrjun hvers árs miðað við íbúatölu aðildasveitarfélags hinn 1. desember árið á undan.
Stjórnin heldur fundi svo oft sem þurfa þykir og að jafnaði er það um einu sinni í mánuði.
Starfsreglur stjórnar SORPU
Skoða fundargerðir.
Í stjórn SORPU bs. sitja; Karl Sigurðsson fyrir Reykjavík, Ómar Stefánsson varaformaður fyrir Kópavog, Margrét Gauja Magnúsdóttir fyrir Hafnarfjörð, Páll Hilmarsson fyrir Garðabæ, Hafsteinn Pálsson fyrir Mosfellsbæ, Bjarni Torfi Álfþórsson fyrir Seltjarnarnes. Framkvæmdastjóri er Björn H. Halldórsson.
Þessi síða var síðast uppfærð þann 10. maí 2013













