Á 20. starfsafmælinu sínu fagnar SORPA vottun á gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 staðli og er fyrsta fyrirtækið á Íslandi á sviði úrgangsstjórnunar til þess. Vottun er staðfesting á faglegum og öguðum vinnubrögðum starfsmanna SORPU við móttöku, meðhöndlun og ráðstöfun úrgangs.
SORPA vann með ráðgjafafyrirtækinu 7.is að undirbúningi og gerð gæðastjórnunarkerfisins með þessum frábæra árangri.
Vottun tekur til alls starfsemi fyrirtækisins en SORPA rekur margþætta starfsemi:
Sex endurvinnslustöðvar á Höfuðborgarsvæði þar sem tekið er á móti flokkuðu úrgangi frá heimilum og rekstraraðilum.
Móttöku- og flokkunarstöð í Gufunesi í Reykjavík þar sem úrgangur er meðhöndlaður vélrænt til að stuðla að frekari endurvinnslu, t.d. endurheimt málma úr heimilissorpi, rúmmálsminnkaður og kominn í réttan farveg.
Urðunarstaður í Álfsnesi en þar hafa verið þróaðar aðferðir í urðunartækni og er einn af fáeinum í veröldinni þar sem hauggasið sem myndast við niðurbrot lífræns úrgangs er safnað og hreinsað til að nota á farartækjum (metan).
Allir þekkja svo Góða hirðinn, nytjamarkað SORPU og líknarfélaga, en hann er dæmi um besta mögulegan farveg fyrir úrganginn, þ.e. endurnotkun.
Ennfremur stendur SORPA fyrir öflugri fræðslu um umhverfismál á öllum stigum skólakerfis og samfélagsins.
Fjölþættar kröfur gilda um meðhöndlun úrgangs og regluverkið er flókið og í stöðugri þróun, m.a. vegna Evrópskrar samvinnu. Oft á tíðum eru íslenskar aðstæður frábrugðnar þeim sem þekkjast á meginlandi og innleiðingin á Íslandi skammt á veg komin og þarf því að leita frumlegra lausna til að uppfylla kröfurnar.
Í tengslum við uppbyggingu gæðastjórnunarkerfisins var unnið að hönnun og upptöku nýs heildstæðs vörunúmerakerfis fyrir fyrirtækið með áherslu á að mæta kröfum um rekjanleika við skráningu úrgangs. Ennfremur voru reglur um flokkun og móttöku úrgangs á starfsstöðvum SORPU endurskoðaðar m.t.t. samræmingar og settar fram á nýstárlegan hátt.













