Vistvæn ökutæki

Sú vitundarvakning sem hefur átt sér stað í úrgangsmálum hefur einnig náð til orkumála en aukinn áhugi er meðal almennings um umhverfisvænt eldsneyti. Metan er eldsneyti sem unnið er úr hauggasi og með því að nota metan í stað bensíns eða gasolíu er unnt að draga verulega úr mengun. Metan er orkurík aukaafurð frá meðhöndlun úrgangs sem upplagt er að nýta í stað jarðefnaeldsneytis. Þar sem metan í hauggasi er kraftmikil gróðurhúsalofttegund, eða allt að 21 sinnum öflugara en koltvísýringur ef það fær að gufa óhindrað upp úr haugnum, er upplagt að draga úr áhrifum hauggasins um leið og framleitt er umhverfisvænt eldsneyti.

Dótturfyrirtæki SORPU, Metan hf., hefur það hlutverk að sjá um sölu og markaðssetningu eldsneytisins. Haldin var vel heppnuð ráðstefna í febrúar 2007 í tilefni af 10 ára afmælis gassöfnunar í Álfsnesi, sem bar yfirskriftina Hvernig ökum við í átt að vistvænni framtíð? – verður metan lykilorðið. Í kjölfar ráðstefnunnar mátti finna mikinn meðbyr í samfélaginu og á meðal bílaumboða með notkun metans þar sem m.a. fleiri fyrirtæki fjárfestu í metanbifreiðum á árinu 2007.

Í dag eru ökutæki SORPU  að mestum hluta metanbifreiðar. Metanbifreiðarnar eru s.k. tvíorkubílar sem ganga fyrir metan og bensíni eða metani og gasolíu. Vægi jarðefniseldsneytisnotkunar SORPU hefur dregist verulega saman vegna meiri notkunar metans. Reynsla SORPU af metanbifreiðum er mjög góð og hafa þær reynst mjög vel. SORPA gerir einnig kröfu þess efnis að ökutækja - og vinnuvélafloti verktaka á þeirra vegum séu vistvæn eða knúin á metani.