Grænt bókhald
SORPA leggur metnað sinn í að flokka vandlega þann úrgang sem fellur til hjá fyrirtækinu og halda nákvæmt efnisbókhald yfir hráefni og orku sem notuð eru í starfssemi fyrirtækisins. Þessu verkefni er sinnt samviskusamlega allan ársins hring til að tryggja að hægt sé að veita eigendum, eftirlitsaðilum, stofnunum og almenningi gagnlegar upplýsingar um það hvernig umhverfismálum er háttað hjá SORPU. Grænt bókhald er gefið út í ársskýrslu SORPU og birt á heimasíðu fyrirtækisins.




















