Vakning í umhverfismálum
Úrgangur hefur ávallt fylgt manninum og eftir því sem samfélagsgerðir manna verða flóknari eykst magn úrgangs sem fellur til. Nú er svo komið á Vesturlöndum að við daglegan leik og störf hvers manns fellur til um sexföld þyngd hans af úrgangi á ári. Í þessum úrgangi felst gífurlegt magn hráefna sem falla vel til endurnýtingar eða endurvinnslu. Íslenskt samfélag einkennist af mikilli neyslu og því lætur nærri að endurvinnsla sé eina leiðin sem okkur er fær til að koma í veg fyrir að við göngum of nærri auðlindum okkar.
Á undanförnum árum hefur mátt merkja aukna vakningu í umhverfismálum á Íslandi og er það vel. Hennar hefur meðal annars gætt í umræðu fjölmiðla um nauðsyn þess að huga að því sem hver og einn getur gert til að stuðla að verndum umhverfis og auðlinda. Þar hefur verið nefnt mikilvægi þess að endurnýta sem mest að því sem fellur til á heimilinu, ekki aðeins með því að safna dagblöðum og dósum heldur einnig með því að skila nytjavöru til Góða hirðisins, vera með jarðgerðartunnu í garðinum, endurnýta plastpoka í innkaupaferðum og tryggja að spilliefni endi ekki í almennu rusli. Staðreyndin er sú að það er auðvelt að flokka og það felst mikil skynsemi í því að endurvinna úrgang.

SORPA er umhverfis- og þjónustufyrirtæki
Starfsmenn SORPU sinna afar mikilvægu hlutverki við umhverfisvernd á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir aðstoða fyrirtæki og almenning við að koma sínum úrgangi í viðeigandi farvegi. Þeir hafa umfangsmikla þekkingu á réttri meðhöndlun úrgangs og endurvinnslumöguleikum hans. Það má því segja að starfsmenn SORPU upplifi umhverfisvernd í verki þar sem þeir sjá magnið sem berst af úrgangi og taka þátt í stöðugri vinnu við að auka magn þess sem fer í endurvinnslu. Einnig verða þeir vitni að þeirri stórkostlegu endurnýtingu sem á sér stað með sölu nytjahluta í Góða hirðinum. SORPA hefur komið að umhverfisuppeldi allt frá upphafi og haft það að leiðarljósi að rétt meðhöndlun úrgangs sé á ábyrgð okkar allra. Með því að taka á móti nemendum á öllum aldri í fræðsluferð um fyrirtækið fer fram kynning á því hvernig flokka eigi úrgang til að nýta betur verðmæti sem þar leynast og þannig er stuðlað að meðvitaðri æskuhóp í samfélaginu.
Innan SORPU hefur skapast fyrirtækjamenning sem einkennist af áhuga starfsmanna á umhverfisvernd. Þessi áhugi er markvisst efldur með árlegum umhverfismánuði SORPU þar sem m.a. er minnt á umhverfisstefnu fyrirtækisins. Í tengslum við umhverfismánuðinn er gefið út starfsmannaritið Vistivitinn sem birtir fréttir af helstu þróunarverkefnum fyrirtækisins í umhverfismálum, ýmsan fróðleik um úrgangsmál og viðtöl eða skoðanaskipti starfsmanna. Allan ársins hring eru haldnir fundir með tengiliðum starfsdeilda þar sem veitt er aðstoð og hvatning við flokkun úrgangs en mikil áhersla er lögð á að nákvæmni og metnaður séu í fyrirrúmi við efnisbókhald og skráningu úrgangs.









