Samstarfsverkefni


Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs er samstarfsverkefni SORPU bs, Sorpstöðvar Suðurlands bs, Sorpeyðingastöðvar Suðurnesja sf og Sorpurðunar Vesturlands hf. Fyrirtækin annast meðhöndlun úrgangs fyrir 34 sveitarfélög með alls um 251 þúsund íbúa. Starfssvæði þessara samlaga er á vestan- og sunnanverðu landinu, frá Gilsfjarðarbotni í vestri og að Markarfljóti í austri.

Áætlunin er niðurstaða samstarfssamnings sem gerður var hinn 29. desember 2004 og endurnýjaður 12. febrúar 2008 um samstarf samlaganna um gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar á grundvelli laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og þeirra markmiða sem sett eru í Landsáætlun Umhverfisstofnunar frá 2004.

Fyrsta útgáfa áætlunarinnar var gefin út 2005 og hlaut staðfestingu sveitarstjórna allra þeirra sveitarfélaga sem áætlunin nær til. Samkvæmt ákvæðum laganna skal endurskoða áætlunina á 3ja ára fresti. Sameiginleg svæðisáætlun ásamt umhverfisskýrslu kom út í mars 2009.

Áætlunin er unnin samkvæmt 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og byggir á markmiðum Landsáætlunar Umhverfisstofnunar. Gerð áætlunarinnar var í höndum verkefnisstjórnar sem eftirtaldir skipuðu:
Frá SORPU bs: Ögmundur Einarsson, fv. framkvæmdastjóri, Herdís Sigurjónsdóttir, stjórnarformaður. Frá Sorpstöð Suðurlands bs: Guðmundur Tryggvi Ólafsson, framkvæmdastjóri. Frá Sorpeyðingastöð Suðurnesja sf: Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri. Frá Sorpurðun Vesturlands hf: Hrefna Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri.
Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri SORPU bs vann með nefndinni. Verkefnisstjóri og formaður verkefnisstjórnar var Ögmundur Einarsson. Ritstjórn og umhverfismat við endurskoðun áætlunarinnar var í höndum sérfræðinga hjá Mannviti hf verkfræðistofu.

Nálgast má allar upplýsingar um verkefnið á heimasíðu þess, www.samlausn.is.