Fræðslumyndband um endurvinnslu á fernum
Hér er hægt að skoða myndband um endurvinnslu á fernum sem gert var árið 2003. Í dag hefur ferlið að vísu breyst að því leyti að nú má setja umbúðir úr sléttum pappa með fernunum í endurvinnslu. Það er hins vegar sama fyrirtæki sem tekur við þessum umbúðum og tók við fernum árið 2003 og vinnslan er með svipuðum hætti.
Í myndbandinu er fylgst með ferli fernunnar, meðhöndlun hennar á Íslandi hjá SORPU og framleiðslu á nýrri vöru hjá fyrirtækinu Fiskeby board í Svíþjóð.
Hægt er að skoða þrjár útgáfur af myndbandinu sem eru miðaðar við mismunandi internet tengingar. Besta upplausnin er fyrir ADSL tengingu en þeir sem eru með ISDN eða venjulegt módem geta einnig skoðað myndböndin í útgáfum sem henta þeim.
Fernur - ADSL
Fernur - ISDN
Fernur - módem
Athugið að þið þurfið að vera með Windows Media Player eða sambærilegt forrit.












