Grunnskólafræðsla
SORPA bíður upp á tvennskonar fræðsluferðir fyrir Grunnskóla, annars vegar á skrifstofu fyrirtækisins í Gufunesi og eins á endurvinnslustöðvum.
Fræðsluferðir í Gufunes
- Tekið er á móti allt að 30 nemendum í einu.
- Nemendur koma með rútu, sem skólinn útvegar, á skrifstofu SORPU í Gufunesi.
- Hægt er að panta ferðir klukkan 9.00 og 13.00 alla virka daga.
- Ferðin tekur um klukkustund
Fræðsla
Börnin koma með rútu, sem leikskólinn útvegar, á skrifstofu SORPU í Gufunesi. Hluti fræðslunnar fer fram innandyra í „Turninum", rými sem er ætlað til móttöku hópa. Í fræðslunni er lögð áhersla á umræður og myndræna framsetningu. Börnin fá tækifæri til að skoða mismunandi flokka úrgangs, afurðir úr þeim og leysa verkefni í sameiningu.
Skoðunarferð
Haldið er af stað með rútunni og ekið í gegnum móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi. Starfsemi stöðvarinnar er útskýrð fyrir nemendum og þau sjá með eigin augum hvernig vinnslu á úrgangi er háttað. Í móttökustöðinni er úrgangur meðhöndlaður í sorppressum, sorphakkavélum og í timburtætara. Ekið er um svæðið í kringum stöðina og að lokum er keyrt fram hjá Efnamóttökunni hf. en þar er tekið á móti spilliefnum af öllu landinu.
Ferðin hentar öllum aldurshópum en efnisinntak fræðslunnar er sniðið að aldri nemenda. Ef kennarar hafa einhverjar séróskir reynum við eftir bestu getu að koma til móts við þær.
Fræðsluferðir á endurvinnslustöðvar
Hægt er að panta ferðir fyrir hádegi alla virka daga og tekur fræðslan um 30 mínútur. Nemendur geta komið með strætó á endurvinnslustöðvar SORPU þar sem fræðslufulltrúi tekur er á móti þeim. Starfsemi stöðvarinnar er útskýrð fyrir nemendum og þau frædd um úrvinnslu úrgangsins.
Ruslið þitt getur verið hráefni í nýja vöru
Markmið fræðslunnar er að kynna nemendum gildi flokkunar úrgangs og endurvinnslu. Þeir kynnast því hvað er gert við úrganginn sem skilað er til SORPU til endurnýtingar og fá tilfinningu fyrir því hvað verður um það sem þau setja í tunnuna heima hjá sér. Áhersla er lögð á umhverfisávinninginn sem felst í því að flokka og skila úrgangi til endurvinnslu. Þannig öðlast hinir ýmsu hlutir framhaldslíf sem nýjar vörur og aðrir hlutir fara til nýrra eigenda s.s. föt, skór og nytjahlutir.
Fræðsluefni
Samstæðuspil
Trjálfarnir Reynir Víðir Lyngdal og Börkur Birkir eru umhverfisvænir trjálfar og birtust fyrst í Stundinni okkar jólin 2006 Trjálfainnslög úr Stundinni Okkar.Trjálfarnir heimsækja SORPU í þessu spili og fræðast um ýmislegt sem tengist ruslinu okkar, flokkun og endurvinnslu. Þetta efni fá nemendur afhent að lokinni vettvangsferð ásamt viðurkenningarskjali. Einnig eru sérstakar kennaraupplýsingar aðgengilegar á heimasíðu SORPU sem aðstoða kennara við undirbúning og eftirfylgni vettvangsferða. Þar má finna samantekt um SORPU og umhverfismál, skilgreiningar úrgangshugtaka, hugmyndir að verkefnum o.fl.
Fræðslumyndbönd um endurvinnslu
Á heimasíðu SORPU eru fræðslumyndbönd um endurvinnslu á fernum, bylgjupappa og dagblöðum og tímaritum sem gerð voru árið 2003. Myndböndin eru undir tenglinum endurvinnsla.
Nánari upplýsingar og tímapantanir
Hægt er að panta ferðir klukkan 9.00 og 13.00 alla virka daga. Kennurum sem hafa áhuga á að koma með nemendur í vettvangsferð er bent á að hafa samband við Dóru Sif Sigurðardóttur fræðslufulltrúa í síma 520 2200 eða senda tölvupóst á dorasif.sigurdardottir@sorpa.is









