Almannatengsl


Endurvinnslu- og umhverfismál koma okkur öllum við. Af þeim sökum eru stöðug almannatengsl um málefni SORPU einhver mikilvægasti liður starfseminnar. Þau fara helst fram í formi kynninga, fræðslu og upplýsingagjafar ásamt ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana. Á undanförnum árum hefur fræðslustarf SORPU vaxið og dafnað, enda mikil eftirspurn eftir þeim þætti. Markmið fræðslunnar er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs með það að leiðarljósi að gera fólk að ábyrgum og vistvænum neytendum. Í fræðslunni er farið yfir atriði sem aðstoða fólk við að minnka heimilisúrgang með réttri flokkun og upplýsa þau um hvernig nýta má ákveðnar tegundir úrgangs til endurvinnslu eða endurnotkunar. Með þessu vill SORPA stuðla að því að almenningur opni vitund sína gagnvart eigin neysluvenjum og virki hana á jákvæðan hátt. Bæklinga um flokkun úrgangs er hægt að finna hér. Flokkunartöfluna er einnig að finna fremst í almanaki fyrirtækisins.


SORPA er í samstarfi við Ríkissjónvarpið um framleiðslu á innslögum um Tré-álfa sem kalla sig Trjálfa.Trjálfarnir Reynir Víðir Lyngdal og Börkur Birkir eru umhverfisvænir tré-álfar sem birtast okkur á skjánum í Stundinni okkar. Trjálfarnir eru duglegir við að fræða börnin um umhverfismál, flokkun, endurvinnslu og endurnýtingu og stuðla þannig að meðvitaðri æsku í samfélaginu. SORPA mun styðjast enn frekar við þessa skemmtilegu persónur í fræðslumálum fyrirtækisins á næstu árum.  Hér má finna Trjálfainnslög úr Stundinni okkar


Almanak SORPU var gefið út í tíunda skipti en að þessu sinni var það unnið í samstarfi við Iðnskólann í Hafnarfirði. 
Almanakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar og sýna fram á að í ruslinu geta falist verðmæti. Efniviður í allskyns nýja hluti leynist víða og ruslið getur orðið að einstökum listaverkum eða nýjum vörum og umbúðum við endurvinnslu.