Fræðsla
Fræðsla gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að umhverfismálum. SORPA leggur sitt af mörkum með því að bjóða upp á fræðsluferðir um fyrirtækið fyrir ýmsa hópa þar sem fjallað er um umhverfissjónarmið við úrgangsmeðhöndlun. Markmiðið með fræðslunni hjá SORPU er að efla umhverfisvitund og auka þekkingu á umhverfismálum. Meðal annars er farið yfir það hvernig hægt er að lágmarka úrgang og nýta það hráefni sem til fellur með því að flokka og skila til endurnýtingar og endurvinnslu.
Á hverju ári koma um 2500 einstaklingar á öllum aldri í slíka fræðslu og er stærsti hópurinn nemendur leik- og grunnskóla. SORPA tekur einnig á móti nemendum framhaldsskóla, fyrirtækjahópum og öðrum sem hafa áhuga á því að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Á sumrin bjóðum við svo upp á fræðslu fyrir nemendur vinnuskólanna á höfuðborgarsvæðinu.
Tímapantanir
Þeir sem hafa áhuga á að koma í vettvangsferð er bent á að hafa samband við Erlu Hlín Helgadóttur umhverfis- og fræðslufulltrúa SORPU í síma 520 2200 eða senda tölvupóst á erla.helgadottir@sorpa.is
Þessi síða var síðast uppfærð þann 04. janúar 2013













