Gassöfnun
![]() |
| Gassöfnun |
Í sorphaugum myndast hauggas sem er blanda af koltvísýrlingi (CO2) og metani (CH4). Hauggasið myndast við það að náttúrulegar bakteríur brjóta niður lífrænt efni í haugnum og mynda hauggasblöndu. Þessar bakteríur eru kallaðar loftfirrðar þar sem þær geta einungis lifað ef ekkert súrefni er til staðar. Slíkar aðstæður myndast í sorphaugum, en myndast t.d. einnig í mýrum. Þetta er því náttúrulegt niðurbrotsferli. Metanið í hauggasinu er mjög orkuríkt en einnig slæm gróðurhúsalofttegund. Því er gasi safnað á öllum nútímalegum urðunarstöðum. Mjög misjafnt er hvað er gert við gasið, á nokkrum stöðum er því brennt en slíkt er sóun á orku.
Gasinu í Álfsnesi er safnað með því að bora í hauginn. Boraðar eru holur nánast niður á botn urðunarstaðarins og götuðum stálrörum komið fyrir í holunni (sjá mynd). Efst í rör er tengd leiðsla sem liggur í svokallaða safnkistu sem síðan er tengd við dælustöð. Frá dælustöðinni liggja síðan leiðslur í hreinsistöð Metans, í brennara SORPU og í rafstöð Orkuveitu Reykjavíkur.
Um 1,4 milljónir tonna af úrgangi hefur verið urðuð í Álfsnesi frá árinu 1991. Búið er að virkja um 60% af því svæði og var metanframleiðsla í Álfsnesi um 374.000 rúmmetrar árið 2008 sem var um 25%meira en árið 2007. Ef miðað er við að urðað verði í Álfsnesi til 2014 verður gasframleiðsla til a.m.k. 2030 og er áætlað að framleiðslan nái hámarki 2016.
Ef allt metanið væri nýtt á bíla mætti gera ráð fyrir að það dyggði fyrir um 2000—3000 smábíla. Orkuinnihald metans samsvarar 1,12 L bensín/Nm3 metan. Í dag eru um 150 metanbílar á götum höfuðborgarsvæðisins. Metanbílar - hreinna loft!
Metan hf, í eigu SORPU bs., N1 hf. og Sprotasjóðsins hf., var stofnað til að markaðssetja metan og finna nýtingarmöguleika fyrir það. Hægt er að nota gasið sem ökutækjaeldsneyti, til rafmagnsframleiðslu, til hitunar eða til notkunar í iðnaði í stað jarðefnaeldsneytis. Nánar er fjallað um notkun metans sem ökutækjaeldsneytis á heimasíðu Metans hf. www.metan.is.
Þessi síða var síðast uppfærð þann 11. ágúst 2011













