Góði hirðirinn-aðalsíða
(15:50 4/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6,8 m/s
Hitastig: 2,80 °C

Móttöku- og flokkunarstöðin í Gufunesi

Afgreiðslutími er frá 7.30-17.00 alla virka daga. sjá á korti

Opið er á laugardögum frá 13-16 AÐEINS fyrir viðskiptavini með viðskiptakort.

Móttöku- og flokkunarstöð SORPU er staðsett í Gufunesi, þar er tekið á móti öllum úrgangi frá höfuðborgarsvæðinu.
Má þar fyrst nefna úrgang frá heimilum en það er að stórum hluta svokallað húsasorp eða heimilissorp. Einnig berst til stöðvarinnar mikið af ýmiss konar iðnaðarúrgangi frá fyrirtækjum. Þess má geta að á árinu 2008 fóru um 107.240 tonn af úrgangi í gegnum stöðina.
Allur þessi úrgangur er baggaður eða meðhöndlaður með öðrum hætti áður en hann er sendur áfram til nýtingar eða förgunar eftir því sem við á.
 
Fyrirtækin sem og einstaklingar greiða fyrir hverja losun samkvæmt gjaldskrá.
 
Starfsemi stöðvarinnar framfylgir lögum og reglugerðum um sorpmeðhöndlun og fer allt frárennslisvatn frá stöðinni í gegnum þrefalt vatnshreinsikerfi áður en það er leitt til sjávar. Mengun hefur aldrei mælst í sjónum neðan við stöðina en sýni eru tekin þar reglulega. Móttöku- og flokkunarstöðin er einnig endastöð hluta þess úrgangs er berst inn til endurvinnslustöðvanna.