Leiðsögn í úrgangsstjórnun fyrirtækja.
SORPA er leiðandi fyrirtæki á svið úrgangsstjórnunar og býr yfir ómældri þekkingu á því sviði. Vanti þig ráðgjöf á sviðinu, þá er þér velkomið að setja þig í samband við Jón Ólaf stöðvarstjóra móttökustöðvar SORPU. Hann getur leiðbeint þér um þau skref og þær leiðir sem hentar þínu fyrirtækið ef verið er að skoða úrgangsmál fyrirtækisins, hvað skal flokka og hvernig, hvernig er hagkvæmast að gera það og hvað þarf til.
SORPA hefur unnið að margvíslegri þróun til einföldunar fyrirtæki. Nú geta fyrirtæki skilað öllum pappírsúrgangi (pappír, pappírsumbúðum og smærri bylgjupappaumbúðum) í sama flokkinn. Allt fer laust í tunnuna og sleppa öllum plastpokum. Plastpokar eru aðskotahlutir í þessum farmi. Ath matarleifar og önnur óhreinindi eiga ekki samleið með umbúðum og pappír í endurvinnslu.
SORPA hefur sett upp véltæka flokkun sem nær málmum úr blönduðum úrgangi með segulfæriböndum og ekki þarf að flokka málma þá í sér flokk. Höldum málmum til haga og setja þá síðan beint í tunna, í lausu.
Frekari upplýsingar um það hvernig fyrirtæki geta tekið til í úrgangsmálum hjá sér, hafið þá samband við Jón Ólaf í síma 660 2211 eða Rögnu Halldórsdóttur 660 2236. Þau munu leiðbeina fyrirtækjum um það hvernig má hagræða og gera enn betur í stjórnun úrgangsmála hjá þínu fyrirtæki.

Leiðsögn í úrgangstjórnun heimila.
SORPA er leiðandi fyrirtæki á svið úrgangsstjórnunar og býr yfir ómældri þekkingu á því sviði. Vanti þig ráðgjöf varðandi úrgangsmálin hjá þér, þá er þér velkomið að setja þig í samband við markaðs- og fræðsludeild SORPU. Þar færðu leiðbeiningar um þau skref og þær leiðir sem henta heimilum, hvað skal flokka og hvernig er hagkvæmast að gera það.
Ath. að hreinleiki hráefnis skiptir höfuðmáli, matarleifar og önnur óhreinindi eiga ekki samleið með flokkuðum úrgangi í endurvinnslu.
SORPA hefur sett upp véltæka flokkun sem nær málmum úr blönduðum úrgangi með segulfæriböndum og ekki þarf að flokka málma þá í sér flokk. Höldum málmum til haga og setjum þá síðan beint í tunna, í lausu.
Frekari upplýsingar um flokkun úrgangs veitir fræðslufulltrúi í síma: 520 2200 eða sendið fyrirspurn á netfangið sorpa@sorpa.is