SORPA veitir einu sinni til tvisvar á ári styrki sem tilkomnir eru af ágóða af sölu nytjahluta í Góða hirðinum.
Forsendur fyrir úthlutun styrks frá Góða hirðinum eru eftirfarandi;
- Að styrkurinn renni til „Hjálpar fólki til sjálfshjálpar“ svo sem menntunnar, endurhæfingar og sjálfsbjargar. Leitast er við að styrkja efnaminni börn og ungmenni.
- Styrkirnir eru veittir til líknar- og félagasamtaka. Leitast er við að veita styrkina til aðila og verkefna á starfssvæði SORPU bs.
- Styrkumsækjendur skulu gefa greinagóða lýsingu á því verkefni sem sótt er um styrk til og kostnaðaráætlun verkefnisins. Gerð skal krafa um að styrkþegar sendi SORPU greinagerð, afrit af fræðslu- og/eða kennsluefni þeirra verkefna sem styrkir eru veittir til þegar áfanga þeim er náð sem styrkurinn var veittur til.
- Ákjósanlegt er að nafn SORPU/Góða hirðisins komi fram á styrktu efni og/ eða verkefnum.
Umsóknartímabil fyrir haust styrkveitingu eru 16. nóvember til 31. júlí hvers árs, fyrir desember styrkveitingu er 1. ágúst til 15. nóvember hvers árs.
Til að sækja um styrk þarf að fylla út umsókn hér að neðan. Athugið að fylla verður út í þá reiti sem merktir eru með rauðri stjörnu (*).













