Styrkþegar:

2011 Alls veitti Góði hirðirinn 23,2 milljónir í styrk á árinu.  Fyrri styrkurinn hljóðaði upp á 9,3 milljónir og seinni styrkurinn upp á 13,9 milljónir. Þeir aðilar sem hlutu styrki á árinu eru;  NPA miðstöðin fyrir fræðsluefni fyrir ungt fatlað fólk, Drekaslóð fyrir fræðsluefni og námskeiðahald fyrir þolendur ofbeldis, Vímulaus æska til stuðnings og úrræða fyrir ungt fólk, Unghugar til eflingar og sjálfstyrkingar, Félag heyrnarlausra til útgáfu á dvd diski ætlaður börnum til fræðslu um táknmál, Fjölsmiðjan til kaupa á brennsluofni, Heimili og skóli til fræðslu vegna eineltis, Íþróttafélagið Ösp til greiðslu á húsaleigu fyrir skautaiðkun fatlaðra, Hjálparstarf kirkjunnar fyrir inneignarkort, Rauði Krossinn fyrir verkefnið Gott, hollt og ódýrt með Rauða Krossinum, samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða Krossins vegna námskeiðahalds, Hringsjá til endurnýjunar á tölvubúnaði, Bandalag kvenna til námsstyrks til ungra kvenna, Hjálpræðisherinn í Reykjavík til velferðarstarfs, BUH (æskulýðsstarf Hjálpræðishersins) til barna og unglingastarfs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur til kaupa á matvöru, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar til kaupa á matarkortum, Fjölskylduhjálp Íslands til matarúthlutunar, Umsjónarfélag einhverfra til styrktar við starfsþjálfun einhverfra, samtök landsambands fatlaðra til eflingar hreyfihamlaðs fólks og að lokum Drekasetrið á Eyjaslóð.
Ásamt þessum tveimur styrkveitingum var haldið uppboð í Góða hirðinum og söfnuðust þá 690.000 kr. og runnu þær til Parkinsonssamtakanna.

2010 Alls voru veittar 43 milljónir í styrk á árinu. 7,5 milljón kr. til styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna vetrarstarfs Reykjadals. 14,6 milljónir króna var veittur til eftirtalinna aðila: Hjálparstarf kirkjunnar til tómstundastarfs barna og í framtíðarsjóð, Hjálpræðisherinn vegna Eyjaslóðar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Rauði krossinn, Bandalag kvenna og Félag einstæðra foreldra vegna aðstoðar til náms, Félag heyrnarlausra til útgáfu barnaefnis og vegna CODA verkefnisins, Foreldrahús og Systkinasmiðjan. Tröð hlaut einnig styrk vegna verkefnisins forvarnir í hestamennsku fyrir unglinga. Þann 17.desember voru svo veittar 20 milljónir til 13 aðila.  Þeir aðilar voru; Hjálparstarf kirkjunnar til stuðnings við ungar mæður með litla skólagöngu, til tómstunda barna og í neyðaraðstoð fyrir jólin 2010, Hjálpræðisherinn til styrktar börnum og unglingum BUH og í neyðaraðstoð fyrir jólin 2010. Mæðrastyrksnefndir Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar fengu styrki í neyðaraðstoð fyrir jólin 2010, Rauði Krossinn fyrir verkefnið Félagsvinir atvinnuleitenda, í verkefnið Neyðarsíminn 1717 og í neyðaraðstoð, Bandalag kvenna fyrir starfsmenntasjóð, Hringsjá fyrir tæki til kennslu og aðbúnað nemenda, Umhyggja fyrir aðstoð við fjölskyldur langveikra barna þar sem foreldrar eru öryrkjar og einstæðar mæður, Stígamót fyrir aðstoð við að komast úr vændi og mansali og Hestamannafélagið Hörður fyrir sérsmíðaða hnakka fyrir fatlaða.

2009 voru alls veittir styrkir upp á átján milljónir kr. Í september var átta milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Bandalag kvenna í  starfsmenntasjóð, Framtíðarsjóður hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Rauða kross húsið Borgartúni, Foreldrahús og Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Í desember var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Félag lesblindra  til útgáfu bókar sem nýtast á kennurum  og foreldrum, Jerico  til kynningar og átaksstarfs um einelti í grunn-og framhaldsskólum, Hugarafl til geðfræðslu og vinna gegn fordómum í grunn- og framhaldsskólum, Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar til hjálpar fjölskyldum með börn á grunn- og framhaldsskóla aldri til stuðnings við félags-og skólastarf barnanna, Rauða kross húsið Borgartúni til Mentor/mentee verkefnis sem nú er í mótun með sérstakri áherslu á ungt fólk, Hringsjá – lesgreining, námskeið, gagnagrunnur og þjálfun fyrir lesblinda, Starfsmenntasjóður bandalags kvenna, Heilsuhýsi á hjólum – Rauði krossinn – Heilsufarsþjónusta á hjólum, Eyjaslóð og Konukot til hjálpar heimilislausum.

2008 var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði krossinn, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar til matargjafa, Hjálpræðisherinn, Hringsjá og Bandalag kvenna vegna starfsmenntasjóðs.
2007 var sjö milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Átak, Systkina-smiðjan, Félag einstæðra foreldra vegna Starfsmenntasjóðs og Bandalag kvenna í Reykjavík vegna Starfsmenntasjóðs.
2006 var tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarfi kirkjunnar vegna Framtíðarsjóðs, Rauða krossi Íslands vegna verkefnisins Framtíð í nýju landi og Umhyggju vegna langveikra barna og foreldra þeirra en þessi félög hlutu 2 milljónir hvert. Bandalag kvenna vegna Starfsmenntasjóðs, Hjálpræðis-herinn og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hlutu 1 milljón hvert og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs og Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hlutu 500.000 kr. hvor.
2005 var fimm milljón kr. styrkur veittur MS-, MND- og MG félögunum og Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar. MS-, MND- og MG félögin hlutu 1 milljón hvert og Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar hlaut 2 milljónir.
2004 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Rauða krossinum, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Mæðrastyrksnefnd.
2003 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Fjölsmiðjunni, Ásgarði -handverkstæði og Foreldrahúsi.
2002 var 900 þúsund kr. styrkur veittur Tourette samtökunum og CP félaginu (celebral palsy).
2001 var 500 þúsund kr. styrkur veittur félagasamtökum Einstakra barna.
2000 var 500 þúsund kr. styrkur veittur Daufblindrafélagi Íslands.
1999 var 600 þúsund kr. styrkur veittur Þjónustusetrinu Tryggvagötu 26.

Góði hirðirinn þakkar kærlega fyrir ykkar framlag í gegnum árin