Góði hirðirinn - nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga

Góði hirðirinn er staðsettur að Fellsmúla 28 og er opinn frá kl. 12.00 - 18.00 alla virka daga. Síminn er 562 7570. Netfangið er godihirdirinn@sorpa.is
Forðum nytjahlutum frá urðun
| Í Góða hirðinum fæst allt milli himins og jarðar. |
Markmið Góða hirðisins er að endurnýta nytjahluti til áframhaldandi lífs og við tökum vel á móti viðskiptavinum okkar. Ágóði af sölu nytjarhluta í Góða hirðinum rennur til góðgerðarmála, úthlutun fer fram einu sinni til tvisvar á ári.
Nytjahlutir skipta um eigendur, ...ég gaf....þú eignast....
![]() |
| Nytjagámur á endurvinnslustöð. |
Endurvinnslustöðvar - Nytjagámar
Á öllum endurvinnslustöðvum SORPU, nema á Kjalarnesi, eru nytjagámar fyrir Góða hirðinn þar sem fólk getur gefið hluti sem það er hætt að nota en eru enn vel nothæfir. Við tökum við hlutum sem eru með óskert notagildi og tilheyra heimilishaldi. Við tökum ekki við hlutum beint í Góða hirðinn nema í sérstökum tilfellum og þá að höfðu samráði fyrst við verslunarstjóra. Ekki er tekið við fötum og skóm í Góða hirðinn en við bendum á fatagáma á endurvinnslustöðvum.
![]() |
| Gamlir hlutir gleðja marga. |
Gamalt fyrir þér, nýtt fyrir öðrum
Í Góða hirðinum fæst allt milli himins og jarðar m.a. antik, hönnun, smávörur, bækur, plötur, DVD diskar, barnavörur, raftæki ýmis konar, stólar, sófar, borð, skápar, hillur, hurðir, hjól, skíði, skautar, barnavagnar og kerrur ásamt hinum ýmsu furðumunum sem koma til okkar á hverjum virkum degi.
Saga Góða hirðisins
Árið 1993 fór SORPA í samstarf við nokkur líknarfélög um endurnýtingu húsgagna sem annars færu í urðun. Þessi líknarfélög eru Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn. SORPA sá um að safna hlutunum sem bárust á endurvinnslustöðvarnar en Rauði krossinn sá um að afhenda húsmuni til bágstaddra. Rekstrarformið breyttist árið 1995 þegar Rauði krossinn opnaði Nytjamarkaðinn að Bolholti 6. Árið 1997 tók SORPA alfarið við rekstri Nytjamarkaðarins og árið 1999 fékk markaðurinn nafnið Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga.
Ágóði af sölu nytjahluta í Góða hirðinum rennur til góðgerðarmála og þakkar Góði hirðirinn kærlega fyrir ykkar framlag í gegnum árin.
Upplýsingar yfir styrkþega undanfarinna ára er að finna hér.
Þessi síða var síðast uppfærð þann 18. janúar 2013















