Styrkþegar:
2010 var veittur styrkur upp á sjö og hálfa milljón kr. til styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna vetrarstarfs Reykjadals.
2009 voru alls veittir styrkir upp á átján milljónir kr. Í september var átta milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Bandalag kvenna í starfsmenntasjóð, Framtíðarsjóður hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Rauða kross húsið Borgartúni, Foreldrahús og Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Í desember var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Félag lesblindra til útgáfu bókar sem nýtast á kennurum og foreldrum, Jerico til kynningar og átaksstarfs um einelti í grunn-og framhaldsskólum, Hugarafl til geðfræðslu og vinna gegn fordómum í grunn- og framhaldsskólum, Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar til hjálpar fjölskyldum með börn á grunn- og framhaldsskóla aldri til stuðnings við félags-og skólastarf barnanna, Rauða kross húsið Borgartúni til Mentor/mentee verkefnis sem nú er í mótun með sérstakri áherslu á ungt fólk, Hringsjá – lesgreining, námskeið, gagnagrunnur og þjálfun fyrir lesblinda, Starfsmenntasjóður bandalags kvenna, Heilsuhýsi á hjólum – Rauði krossinn – Heilsufarsþjónusta á hjólum, Eyjaslóð og Konukot til hjálpar heimilislausum.
2008 var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði krossinn, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar til matargjafa, Hjálpræðisherinn, Hringsjá og Bandalag kvenna vegna starfsmenntasjóðs.
2007 var sjö milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Átak, Systkina-smiðjan, Félag einstæðra foreldra vegna Starfsmenntasjóðs og Bandalag kvenna í Reykjavík vegna Starfsmenntasjóðs.
2006 var tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarfi kirkjunnar vegna Framtíðarsjóðs, Rauða krossi Íslands vegna verkefnisins Framtíð í nýju landi og Umhyggju vegna langveikra barna og foreldra þeirra en þessi félög hlutu 2 milljónir hvert. Bandalag kvenna vegna Starfsmenntasjóðs, Hjálpræðis-herinn og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hlutu 1 milljón hvert og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs og Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hlutu 500.000 kr. hvor.
2005 var fimm milljón kr. styrkur veittur MS-, MND- og MG félögunum og Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar. MS-, MND- og MG félögin hlutu 1 milljón hvert og Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar hlaut 2 milljónir.
2004 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Rauða krossinum, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Mæðrastyrksnefnd.
2003 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Fjölsmiðjunni, Ásgarði -handverkstæði og Foreldrahúsi.
2002 var 900 þúsund kr. styrkur veittur Tourette samtökunum og CP félaginu (celebral palsy).
2001 var 500 þúsund kr. styrkur veittur félagasamtökum Einstakra barna.
2000 var 500 þúsund kr. styrkur veittur Daufblindrafélagi Íslands.
1999 var 600 þúsund kr. styrkur veittur Þjónustusetrinu Tryggvagötu 26.
Góði hirðirinn þakkar kærlega fyrir ykkar framlag í gegnum árin
Þessi síða var síðast uppfærð þann 16. ágúst 2010









