Góði Hirðirinn
(23:30 6/9)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: A 9,2 m/s
Hitastig: 13,48 °C

Góði hirðirinn - nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga


Góði hirðirinn er staðsettur að Fellsmúla 28 og er opinn frá kl. 12.00 - 18.00 alla virka daga. Síminn er 562 7570. Netfangið er godihirdirinn@sorpa.is


Forðum nytjarhlutum frá urðun 

Í Góða hirðinum fæst allt milli himins og jarðar.

Markmið Góða hirðisins er að endurnýta nytjahluti til áframhaldandi lífs, við tökum vel á móti viðskiptavinum okkar með kaffi á könnunni og góðu viðmóti. Ágóði af sölu nytjarhluta í Góða hirðinum renna til góðgerðarmála, úthlutun fer fram einu sinni á ári.  


Nytjahlutir skipta um eigendur, ...ég gaf....þú eignast....

Nytjagámur á endurvinnslustöð.

Endurvinnslustöðvar - Nytjagámar
Á öllum endurvinnslustöðvum SORPU, nema á Kjalarnesi, eru nytjagámar fyrir Góða hirðinn þar sem fólk getur gefið hluti sem það er hætt að nota en eru enn vel nothæfir. Við tökum við hlutum sem eru með óskert notagildi og tilheyra heimilishaldi. Við tökum ekki við hlutum beint í Góða hirðinn nema í sérstökum tilfellum og þá að höfðu samráði fyrst við verslunarstjóra. Ekki er tekið við fötum og skóm í Góða hirðinn en við bendum á fatagáma á endurvinnslustöðvum.

Gamlir hlutir gleðja marga.

Gamalt fyrir þér, nýtt fyrir öðrum

Í Góða hirðinum fæst allt milli himins og jarðar m.a. antik, hönnun, smávörur, bækur, plötur, DVD diskar, barnavörur, raftæki ýmis konar, stólar, sófar, borð, skápar, hillur, hurðir, hjól, skíði, skautar, barnavagnar og kerrur ásamt hinum ýmsu furðumunum sem koma til okkar á hverjum virkum degi.

Saga Góða hirðisins
Árið 1993 fór SORPA í samstarf við nokkur líknarfélög um endurnýtingu húsgagna sem annars færu í urðun. Þessi líknarfélög eru Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn. SORPA sá um að safna hlutunum sem bárust á endurvinnslustöðvarnar en Rauði krossinn sá um að afhenda húsmuni til bágstaddra. Rekstrarformið breyttist árið 1995 þegar Rauði krossinn opnaði Nytjamarkaðinn að Bolholti 6. Árið 1997 tók SORPA alfarið við rekstri Nytjamarkaðarins og árið 1999 fékk markaðurinn nafnið Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga. 


Ágóðinn rennur til góðgerðarmála 


2010 var veittur styrkur upp á sjö og hálfa milljón kr. til styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna vetrarstarfs Reykjadals.
2009 voru alls veittir styrkir upp á átján milljónir kr. Í september var átta milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Bandalag kvenna í  starfsmenntasjóð, Framtíðarsjóður hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Rauða kross húsið Borgartúni, Foreldrahús og Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Í desember var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Félag lesblindra  til útgáfu bókar sem nýtast á kennurum  og foreldrum, Jerico  til kynningar og átaksstarfs um einelti í grunn-og framhaldsskólum, Hugarafl til geðfræðslu og vinna gegn fordómum í grunn- og framhaldsskólum, Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar til hjálpar fjölskyldum með börn á grunn- og framhaldsskóla aldri til stuðnings við félags-og skólastarf barnanna, Rauða kross húsið Borgartúni til Mentor/mentee verkefnis sem nú er í mótun með sérstakri áherslu á ungt fólk, Hringsjá – lesgreining, námskeið, gagnagrunnur og þjálfun fyrir lesblinda, Starfsmenntasjóður bandalags kvenna, Heilsuhýsi á hjólum – Rauði krossinn – Heilsufarsþjónusta á hjólum, Eyjaslóð og Konukot til hjálpar heimilislausum.
2008 var Tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði krossinn, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar til matargjafa, Hjálpræðisherinn, Hringsjá og Bandalag kvenna vegna starfsmenntasjóðs.
2007 var sjö milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Átak, Systkina-smiðjan, Félag einstæðra foreldra vegna Starfsmenntasjóðs og Bandalag kvenna í Reykjavík vegna Starfsmenntasjóðs.
2006 var tíu milljón kr. styrkur veittur eftirtöldum aðilum: Hjálparstarfi kirkjunnar vegna Framtíðarsjóðs, Rauða krossi Íslands vegna verkefnisins Framtíð í nýju landi og Umhyggju vegna langveikra barna og foreldra þeirra en þessi félög hlutu 2 milljónir hvert. Bandalag kvenna vegna Starfsmenntasjóðs, Hjálpræðis-herinn og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hlutu 1 milljón hvert og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs og Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hlutu 500.000 kr. hvor.
2005 var fimm milljón kr. styrkur veittur MS-, MND- og MG félögunum og Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar. MS-, MND- og MG félögin hlutu 1 milljón hvert og Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar hlaut 2 milljónir.
2004 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Rauða krossinum, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Mæðrastyrksnefnd.
2003 var þriggja milljón kr. styrkur veittur Fjölsmiðjunni, Ásgarði -handverkstæði og Foreldrahúsi.
2002 var 900 þúsund kr. styrkur veittur Tourette samtökunum og CP félaginu (celebral palsy).
2001 var 500 þúsund kr. styrkur veittur félagasamtökum Einstakra barna.
2000 var 500 þúsund kr. styrkur veittur Daufblindrafélagi Íslands.
1999 var 600 þúsund kr. styrkur veittur Þjónustusetrinu Tryggvagötu 26.




Góði hirðirinn þakkar kærlega fyrir ykkar framlag í gegnum árin

Þessi síða var síðast uppfærð þann 16. ágúst 2010