Endurvinnslustöðvar
|
||||||||||
Endurvinnslustöðvarnar eru sjö talsins og eru staðsettar víðsvegar um bæinn (sjá kort). Þar gefst almenningi og smærri fyrirtækjum höfuðborgarsvæðisins kostur á að koma með úrgang til endurvinnslu og/eða eyðingar. GPS hnit svöðvanna er að finna undir hverri og einni hér til hliðar.
Gjaldskylda
Fyrirtæki greiða fyrir losun á öllum úrgangi samkvæmt gjaldskrá. Almenningur notar þessar stöðvar endurgjaldslaust þegar komið er með almennan heimilisúrgang. Það sem hinsvegar flokkast ekki undir daglegan heimilisrekstur og almenningur þarf að greiða fyrir er t.d.
- Úrgangur frá byggingu eða breytingu íbúðahúsnæðis og lóða, t.d. innréttingar, gólfefni, múrbrot og þessháttar.
- Úrgangur frá bifreiðaviðgerðum
- Úrgangur vegna húsdýrahalds
- Garðaúrgangur, gras, trjágreinar og steinefni
Athugið að hámark farmstærða á endurvinnslustöð eru 2 m3.
Úrgangur skal vera vel flokkaður og umfangsminnkaður eins og þess er kostur. Góð flokkun og umfangsminnkun leiðir til lægra verðs.
Flokkun úrgangs og endurvinnsla
Forsenda endurvinnslu er góð flokkun (forflokkun) og á hún að fara fram áður en komið er á endurvinnslustöð. Styttir það dvöl á stöðinni, auðveldar losun og hindrar biðraðamyndun. Þegar komið er á stöðina með vel forflokkaðan úrgang skal farið með hvern flokk í sinn gám en þeir eru allir vel merktir. Það verður að athuga vel að það séu engir aðskotahlutir með úrgangnum sem verið er að safna; það eyðileggur hráefnið og veldur öðrum skemmdum.
Aðskotahlutur er eitthvað sem á ekki heima í tilteknum gám eða umhverfi. Plast í pappírsgámi veldur verðfalli á erlendum markaði, steypuklossi í garðaúrgangi brýtur greinatætarann o.s.frv. Því er mikilvægt að flokka vel og flokka rétt!
Starfsmenn stöðvanna veita aðstoð sína við flokkun ef þarf og leiðbeina öllum þeim er leggja leið sína á Endurvinnslustöðvar SORPU. Þar má einnig nálgast bæklinga um flokkun úrgangs. SORPA gefur út flokkunartöflu sem er gott hjálpartæki við flokkun úrgangs til endurvinnslu. Hægt er að skoða flokkunartöfluna undir liðnum "Endurvinnsla".
Upplýsingar um flokkun úrgangs
Þessi síða var síðast uppfærð þann 09. febrúar 2010










