Pappírsfjallið, magn pappírs á heimili
|
 |
| Pappírsfjallið |
Í lok árs 2002 fóru starfsmenn hjá SORPU, Sorpstöð Suðurlands og Endurvinnslunni á Akureyri í samstarf um mælingar á pappír sem berst inn á heimili landsmanna. Verkefnið hlaut nafnið „Pappírfjallið“ og var markmiðið að fá skýra hugmynd um hvaða pappír væri að berast og í hvaða magni og þannig nálgast forsendur til útreikninga á m.a. hversu stórt hlutfall fer til endurvinnslu. Einnig var kostnaður sveitarfélaganna vegna förgunar pappírs skoðaður. Mælingar stóðu yfir frá 1.1. til 31.12. 2003 og tóku 12 heimili þátt í mælingum. Sjö þeirra voru á höfuðborgarsvæðinu, þrjú á Norðurlandi og tvö á Suðurlandi.
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um:
- Magn og samsetningu óumbeðins pappírs
- CO2 sparnað við endurvinnslu pappírs
- Endurvinnslufarveg pappírs
- Kostnað sveitarfélaga vegna förgunar/endurvinnslu pappírs
- Úrvinnslugjald
|
 |
Sækja |
|
Þessi síða var síðast uppfærð þann 30. júní 2010