Heimajarðgerð
Eins og staðan er í dag er heimajarðgerð eini möguleiki almennings til þess að endurvinna lífrænan úrgang sem fellur til á heimilinu. Með heimajarðgerð má minnka það magn úrgangs sem fer í tunnuna til mikilla muna og jafnframt búa til úrvals gróðurmold og góðan áburð sem nýtist í garðinn, sé hann til staðar. Sjá bækling um heimajarðgerð.