Góði hirðirinn-aðalsíða
(16:50 4/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 5,1 m/s
Hitastig: 2,58 °C

Áhugaverðar heimasíður


Metan hf.
Eigendur Metans hf. eru SORPU bs., Sprotasjóðurinn hf. og Olíufélagið ESSO hf. Fyrirtækið var stofnað 20. ágúst 1999, en markmið þess er að sjá um hreinsun, dreifingu og sölu á metani, framleiðslu á orku úr metani, þróun á umhverfisvænum orkugjöfum og aðra skylda starfsemi.
http://www.metan.is

FENÚR
Fagráð um endurnýtingu og úrgang. Fenúr eru félagasamtök sem hafa það að markmiði að standa fyrir faglegri umræðu um sorphirðu og endurvinnslu. Hlutverk þessa félags er miðlun traustra upplýsinga jafnframt því að eiga í alþjóðlegri samvinnu. Þannig má tryggja hagsmuni okkar og forðast mistök og ósamræmdar aðgerðir.
www.fenur.is

Samlausn 
Samlausn er vettvangur fyrir áætlun fjögurra sorpsamlaga um meðhöndlun úrgangs fram til ársins 2020. Samlögin eru Sorpurðun Vesturlands hf., SORPA bs., Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. og Sorpstöð Suðurlands bs.  Samanlagt starfssvæði er frá Gilsfjarðarbotni í vestri og að Markarfljóti í austri.
www.samlausn.is

Sorphirða í Reykjavík
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur sér um sorphirðu í Reykjavík. Á heimasíðu hennar geta Reykvíkingar kynnt sér sorphirðumál í borginni. 
http://www.reykjavik.is

Efnamóttakan hf.
Efnamóttakan hf. er í eigu SORPU bs., Sagaplasts ehf. og Aflvaka hf. og sér um að taka við öllum spilliefnum er falla til á landinu og eru skaðleg umhverfinu.
http://www.efnamottakan.is

Vistvernd í verki
Vistvernd í verki er íslenskt heiti á alþjóðlegu verkefni sem kallast Global Action Plan (GAP). Það komst fyrst á fót í Bandaríkjunum árið 1989 og er nú í boði í 17 löndum. Þetta er verkefni sem styður og eflir þá sem vilja taka upp umhverfisvænni lifnaðarhætti, með því að bjóða þeim að taka þátt í svokölluðum visthópi. Á síðunni má kynna sér þetta verkefni en þar er einnig að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um umhverfismál og umræðusvæði.
http://www.landvernd.is

Umhverfisráðuneytið
Á heimasíðu umhverfisráðuneytisins er hægt að finna ýmsar upplýsingar um umhverfismál og umhverfisstefnur.
http://umhverfisraduneyti.is

Náttúran
Á heimasíðu Náttúrunnar má finna ítarlegar upplýsingar um umhverfisvottuð fyrirtæki, vörur og þjónustu á Íslandi í dag. Náttúran starfrækir netverslun þar sem neytendur hafa möguleika á að finna umhverfisvænar og heilbrigðar vörur og að fá upplýsingar um efni og innihald vara, umhverfisviðmið og förgunarleiðbeiningar.
www.natturan.is

Umhverfisstofnun
Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er að finna ýmis lög og reglugerðir sem snúa að hollustuháttum og mengunarvörnum en einnig aðrar fróðlegar upplýsingar.
www.umhverfisstofnun.is
Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er einnig skemmtilegur og lærdómsríkur vefur fyrir börn með ýmsum verkefnum.
www.heimurinn.is

Úrvinnslusjóður
Upplýsingar um skilagjald á bifreiðum og fleira.
www.urvinnslusjodur.is

Staðardagskrá 21
Staðardagskrá 21 er heildaráætlun um þróun samfélagsins á 21. öldinni og var ákvörðun um gerð hennar tekin á heimsráðstefnunni í Ríó vorið 1992.
En hvað er Staðardagskrá 21?
http://www.samband.is

Útflutningur pappírs til Svíþjóðar
Fyrirtækið Il recycling tekur við öllum pappír sem SORPA safnar.
www.ilrecycling.com


Náttúruverndarsamtök Íslands
http://www.natturuverndarsamtok.is/

Sorpstöð Suðurlands
Á heimasíðu Sorpstöðvar Suðurlands má finna áhugaverðar upplýsingar um allt milli himins og jarðar, svo sem heimajarðgerð og Kjötmjölsverksmiðju.
http://www.sorpstodsudurlands.is/

ISWA
The International Solid Waste Association.
Alþjóðlegt fagráð um meðhöndlun úrgangs.
www.iswa.org

Endurvinnslan hf.
Endurvinnslan hf. tekur við einnota drykkjarumbúðum sem safnað er á endurvinnslustöðvum SORPU og kemur þeim til endurvinnslu á erlendum markaði. Viltu fræðast nánar um endurvinnslu á skilagjaldsskyldum umbúðum?
www.endurvinnslan.is

Tectan
Tectan er fyrirtæki í Þýskalandi sem framleiðir byggingarefni úr drykkjarfernum. Efnið er nýtt í framleiðslu á allskyns vörum t.d. skjalatöskum, húsgögnum, reglustikum og fl. Á heimasíðu þeirra má skoða myndir af vörunum og fræðast um efnið.
www.tectan.de

Kennsluefni
Skemmtileg og fræðandi síða sérstaklega ætluð unglingum.
http://www.chemicaldays.com/

CO2
Á vefnum eru settar fram upplýsingar og staðreyndir um útblástursmál og loftslagsbreytingar. Vefurinn er ætlaður öllum og þar má finna ýmsar upplýsingar um stöðu mála og hvaða leiðir einstaklingar geta farið til að draga úr eigin útblæstri.
www.co2.is

Þessi síða var síðast uppfærð þann 11. ágúst 2011