Trjágreinar
Hvert skal skila?
Trjágreinum skal skilað án aðskotahluta á endurvinnslustöðvar. Losið greinar ávallt úr pokunum.
Endurvinnsla
Greinarnar eru kurlaðar og nýtast ásamt grasi í moltuframleiðslu.
Hvernig fæ ég moltu?
Þegar garðaúrgangi, grasi og trjágreinum, hefur verið skilað inn á endurvinnslustöð og búið er að greiða fyrir fær viðkomandi afhentan miða. Afgreiðslutími moltunnar verður síðan auglýstur sérstaklega og þá verður hægt að framvísa miðanum á endurvinnslustöð gegn ½ m3 af moltu að andvirði 2.288 kr eða moltublöndu á meðan birgðir endast. Viðskiptavinir sjá sjálfir um að moka moltunni á kerrur eða í ílát. Gjaldskrá yfir moltublöndu er að finna hér
Heimajarðgerð
Með heimajarðgerð má spara sér flutning og kostnað við losun á garðaúrgangi og framleiða eigin moltu sem nýtist sem áburður í garðinum. Hér má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um heimajarðgerð.
*Trjágreinar er gjaldskyldur úrgangur.Sjá gjaldskrá hér Þeir viðskiptavinir sem koma með gras eða greinar, gefst á móti kostur á að sækja sér moltu eða moltublöndu sem er afurð úr endurunnum trjágreinum og grasi og fyrirtaks jarðvegsbætir fyrir allan gróður.









