Góði Hirðirinn
(09:20 9/9)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: NA 7,5 m/s
Hitastig: 13,56 °C

Skrifstofupappír, prentsmiðjuúrgangur (hvítur afskurður)


Hvernig á að flokka?
Í þennan flokk fer t.d. tölvupappír, skrifpappír, faxpappír, sjálfafritandi nótur (NCR pappír) og hvítur afskurður frá prentsmiðjum.

Hvað fer ekki í þennan flokk?
Ekki má setja þykkan kartonpappír sem er mikið ámálaður (skólar og leikskólar) hann fer í óendurvinnanlegt.

Hvert á að skila?
Almenningur getur skilað þessum pappír með dagblöðum, tímaritum, fernum og sléttum pappa í bláa grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu eða á endurvinnslustöðvar SORPU.
Fyrirtæki svo sem prentsmiðjur skila pappír til móttöku- og flokkunarstöðvar SORPU í Gufunesi. 

Hvað er gert við hráefnið? - Endurvinnsla
Pappírinn er pressaður saman undir miklum þrýstingi og vírbundinn í 400 - 500 kg bagga í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Hann er síðan sendur til Svíþjóðar í 40 feta stórum gámum þar sem fyrirtækið Il recycling tekur við honum. Þeir senda pappírinn síðan áfram til nokkurra fyrirtækja í Svíþjóð, m.a. SCA í Lilla Edet, www.scahygieneproducts.com. Þar er t.d. framleiddur salernispappír og eldhúspappír (vörumerkin Edet og Tork). Við endurvinnslu á pappír er leitast við að ná ákveðinni blöndu af trefjamassa sem miðast við þá vöru sem verið er að framleiða hverju sinni. Við framleiðslu á salernispappír er t.d. ákveðnum hlutföllum af skrifstofupappír (meiri gæði, meiri trefjar) blandað saman við dagblaða og tímaritapappír (minni gæði, minni trefjar) og svo er yfirleitt eitthvað af frumunnu efni (trefjar unnar úr trjám). Þessi hlutföll breytast síðan eftir því hvaða vöru er verið að framleiða hverju sinni.  Önnur framleiðsla úr endurunnum skrifstofupappír er m.a. ljósritunarpappír, dagblaðapappír, stílabækur, teiknipappír og margt fleira.