Rafhlöður
Skilum rafhlöðum til eyðingar.
Í rafhlöðum geta verið spilliefni sem eru hættuleg bæði heilsu okkar og náttúrunni komist þau í snertingu við umhverfið. Það er því mikilvægt að engar rafhlöður endi í heimilissorpinu heldur sé komið til úrvinnslu til viðurkenndra aðila sem hafa þekkingu til að farga eða eyða rafhlöðunum, og þar með lágmarka umhverfis- og heilsuspjöll af völdum rafhlaðna. Þær rafhlöður sem eru skaðlegar eru þær sem innihalda kvikasilfur, nikkel-kadmíum og lithium en það er samt sem áður æskilegt að skila öllum rafhlöðum til eyðinar og láta fagmennina sjá um að flokka þær.
Á endurvinnslustöðvum SORPU eru tunnur fyrir rafhlöður en einnig er hægt að skila rafhlöðum á flestar bensínstöðvar svo dæmi séu tekin.
Sjá nánari upplýsingar um rafhlöður á heimasíðu Úrvinnslusjóðs.









