Pappír og umbúðir úr sléttum pappa
Hvernig á að flokka?
Í þennan flokk má setja öll dagblöð, tímarit, auglýsingapóst, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakka, eggjabakka og pakkningar utan af matvælum s.s kexi og pasta. Svo ekki komi ólykt við geymslu skal skola fernurnar vel áður en þeim er skilað. Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar eða plastumbúðir sem kunna að leynast í pappaumbúðum. Losið því blöðin úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setjið þau í lausu í gáminn. Pressið umbúðirnar vel saman Hefti og smærri gormar eru óskaðleg við endurvinnslu.
Ekki má setja þykkan kartonpappír sem er mikið ámálaður (skólar og leikskólar) né harðspjaldabækur. Aðskotahlutir rýra endurvinnslugildi pappírsins.
Athugið að umbúðum úr bylgjupappa skal skilað í bylgjupappagám á endurvinnslustöð þar sem sá pappi fer í annarskonar endurvinnslu en umbúðir úr sléttum pappa.
Hvert á að skila?
Á höfuðborgarsvæðinu eru grenndargámastöðvar og skal skila pappír og umbúðum úr sléttum pappa í bláa grenndargáma (sjá staðsetningu grenndargáma) en einnig má skila honum á endurvinnslustöðvar.
Endurvinnsla – hvað er gert við hráefnið?
Pappír og umbúðir úr sléttum pappa sem skilað hefur verið í grenndargáma eða á endurvinnslustöðvar er fluttur til móttöku- og flokkunarstöðvar SORPU í Gufunesi. Þar er hann pressaður saman undir miklum þrýstingi og vírbundinn í 400 - 500 kg. bagga. Hann er síðan sendur til Svíþjóðar í 40 feta stórum gámum þar sem fyrirtækið Il recycling tekur við honum. Þeir flokka pappírinn enn frekar og senda pappírinn t.d. áfram til SCA í Lilla Edet, www.scahygieneproducts.com. Þar er t.d. framleiddur salernispappír og eldhúspappír (vörumerkin Edet og Tork). Hér má sjá myndband um endurvinnslu á dagblöðum. Il recycling sendir einnig pappír frá okkur til Hylte mill sem er hluti af stærri keðju sem heitir Stora Enso. Á heimasíðu þeirra kemur fram að dagblaðapappírinn sem þeir framleiða er að stórum hluta úr endurunnum dagblöðum eða 64%. Einnig senda þeir umbúðir úr sléttum pappa til Fiskeby sem að sérhæfir sig í framleiðslu kartons. Fiskeby sendir kartonið til viðskiptavina víðsvegar um heiminn, þar á meðal á Íslandi, og eru t.d. búnar til nýjar umbúðir úr því. Úr hverjum fimm kössum er hægt að búa til fjóra nýja.









