Húsbúnaður og aðrir nytjahlutir
Hvað á að flokka?
Allan húsbúnað, raftæki og annað sem fólk vill að fari í endurnotkun, t.d. borð, stólar, rúm, ísskápar, þvottavélar, bækur diskar og bollar svo eitthvað sé nefnt.
Hvert á að skila?
Í nytjagáma á endurvinnslustöðvum.
Endurnotkun
Þessir hlutir fara í Góða hirðinn, nytjamarkað SORPU og líknarfélaga. Þar eru hlutirnir yfirfarnir og seldir á vægu verði.
Ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Ágóði af sölunni í Góða hirðinum rennur til líknarmála og veitir markaðurinn að jafnaði styrk einu sinni á ári.
Í Góða hirðinum er hægt að finna allt milli himins og jarðar á lágu verði og þeir sem eru hrifnir af gömlum hlutum ættu að leggja leið sína þangað.
Hvar er Góði hirðirinn?
Góði hirðirinn er til húsa að Fellsmúla 28 og er opinn frá kl. 12:00 - 18:00 alla virka daga. Síminn hjá Góða hirðinum er 562 7570 og netfangið er godihirdirinn@sorpa.is.
Nánari upplýsingar um Góða hirðinn.









