Hjólbarðar
Tekið er við allt að 4 hjólbörðum frá heimili inn á endurvinnslustöðvar SORPU. Fyrirtæki skila hjólbörðum í meira magni til móttökustöðvar SORPU í Gufunesi og til Furu ehf., Hafnarfirði. Frá og með 1. apríl 2003 geta hjólbarðaverkstæði skilað hjólbörðum án endurgjalds. Hjólbarðar eru tættir hjá Furu.
Kurlaðir hjólbarðar eru nýttir sem drenlag á urðunarstaðnum í Álfsnesi.









