Grófur úrgangur
Í þennan flokk fara ónýtir fyrirferðarmiklir hlutir sem ekki er hægt að pressa eins og t.d. ónýt húsgögn, dýnur, gólfteppi, gluggagarmar með gleri, teppi, bílavarahlutir úr plasti og fleira.
Hvert á að skila?
Í tilgreindan gám á endurvinnslustöðvum.
Efnið er hakkað í móttökustöð SORPU í Gufunesi og síðan fargað á urðunarstaðnum í Álfsnesi.
Þessi flokkur getur verið gjaldskyldur ef um er að ræða úrgang sem tengist framkvæmdum, s.s. gólfdúkar og teppi, gluggakarmar með gleri o.fl. Ónýt húsgögn, t.d. sófar og stólar, eru ekki gjaldskyld.









