Góði Hirðirinn
(23:50 6/9)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: A 8,8 m/s
Hitastig: 13,44 °C

Gras


Hvert skal skila?
Skila skal grasi á endurvinnslustöðvar. Passa að fjarlægja aðskotahluti og ávallt að losa úr pokunum.

Endurvinnsla
SORPA framleiðir jarðvegsbætinn MOLTU úr trjágreinum og grasi. MOLTA er úrvals áburður eða bætiefni í beðin og á grasflötina.

Hvernig fæ ég moltu?
Þegar garðaúrgangi, grasi og trjágreinum,  hefur verið skilað inn á endurvinnslustöð og búið er að greiða fyrir fær viðkomandi afhentan miða. Afgreiðslutími moltunnar verður síðan auglýstur sérstaklega og þá verður hægt að framvísa miðanum á endurvinnslustöð gegn ½ m3 af moltu að andvirði 2.288 kr eða moltublöndu á meðan birgðir endast. Viðskiptavinir sjá sjálfir um að moka moltunni á kerrur eða í ílát. Gjaldskrá yfir moltublöndu er að finna hér 

Heimajarðgerð
Með heimajarðgerð má spara sér flutning og kostnað við losun á garðaúrgangi og framleiða eigin moltu sem nýtist sem áburður í garðinum. Hér má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um heimajarðgerð.

*Gras er gjaldskyldur úrgangur.Sjá gjaldskrá hér  Þeir viðskiptavinir sem koma með gras eða greinar, gefst á móti kostur á að sækja sér moltu eða moltublöndu sem er afurð úr endurunnum trjágreinum og grasi og fyrirtaks jarðvegsbætir fyrir allan gróður.