Filmuplast frá fyrirtækjum
Hvað á að flokka?
Filmuplast skal flokka í tvo flokka:
Litað og/eða áprentað t.d. utan af brettum og úr byggingum. Límband er í lagi en að öðru leyti skal filmuplast vera án aðskotahluta. Móttökugjöld eru engin.
Glært og óáprentað filmuplast án aðskotahluta. Viðskiptavinir fá greitt fyrir filmuplast ef komið er með meira en 126 kg í almanaksmánuði (sjá skilyrði hér að neðan).
Aðskotahlutir - hvað skal flokka frá?
Aðskotahlutir eru t.d. pappahólkar, en filmuplastið má ekki vera vafið upp á hólka, pappi, hart plast, matarleifar eða önnur lífræn efni. Farmur sem inniheldur slík efni er felldur þar sem hann er eingöngu hæfur til urðunar og þurfa fyrirtæki að greiða fyrir losun á öllum blönduðum úrgangi. Aðskotaefni valda erfiðleikum við endurvinnslu og gera efnið óhæft til nýtingar.
Hvert á að skila?
Fyrirtæki skila í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi. Þar er viðskiptavini greitt fyrir filmuplast ef komið er með meira en 126 kg í almanaksmánuði. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að fjárhæðin er lögð inn á viðskiptareikning fyrirtækisins hjá SORPU fyrir uppsafnað magn sem skilað hefur verið í mánuðinum. Sjá reglur þar um og kr/kg í gjaldskrá móttökustöðvar, flokkur 397.









